Háþróaða 3Chill tec™ kerfið í kælivestinu tryggir langvarandi léttir, svo hundurinn þinn geti verið með þér úti á hlýjustu dögum ársins.
Bleyttu vestið: Dýfðu því í fötu með köldu vatni eða bleyttu það í á. Fíltrerað miðlagið drekkur fljótt í sig vatn og dreyfir því jafnt um vestið. Vestið getur haldið vatni í allt að níu sinnum eigin þyngdar fyrir hraða og endingargóða kælingu.
Kælimynstur virkjast: Þegar vestið blotnar sýnir UV-varið ytra lag mynstur. Þetta segir þér að vestið sé virkt og er að vinna að því að kæla hundinn þinn.
Settu vestið á : Smeygðu vestinu yfir höfuð hundins þíns, festu endingargóðu smellurnar yfir brjóstið og stilltu teyjurnar við háls og brjóst til þess að tryggja að vestið sitji þétt og vel á hundinum.
Verjist ofhitnun: Vestið er hannað með þéttu sniði sem þekur aðeins kjarna hundsins og kælir á skilvirkan hátt án þess að hefta frjálsar hreyfingar. Ytra lag vestisins er í ljósum lit úr efni sem endurkastar sólargeislum til þess að verjast ofhitnun enn frekar. Mjúka 3D netaefnið í miðlagi tryggir þægindi og góða öndun.
Munstrið hverfur. - vætið vestið aftur: Þegar munstrið dofnar skaltu einfaldlega væta vestið aftur með því að hella vatni á yfirborð vestisins eða leyfa hundinum þínum að hoppa oní nærrliggjandi vatn til þess að endurvirkja kælandi áhrif þess.
Kælivestið er gert úr endingargóðum efnum með endurskini fyrir aukinn sýnileika, kælivestið er fullkomið fyrir þjónustu hunda í vinnu, fyrir alla hunda við væga áreinslu eða fyrir og eftir mikla áreinslu. Vestið er nógu þunnt til þess að klæðast því undir beisli.
Colling vest kælivestið kemur í litnum light gray/teal í stærðum XS - XL.
ATH ! Vegna mikillar vinsælda um allan heim er einungis takmarkað upplag í boði þetta sumarið.