Ekki láta kuldann ná tökum á þér í gleðistundum með hundinum þínum! Þessi nýja útgáfa af Glacier jacket kápunni okkar heldur hundinum þínum hlýrri, þurrari og óheftum í hreyfingum í uppáhalds útivistar ævintýrum ykkar.
Þessi vetrarkápa er einangruð með PrimaLoft® Black Insulation Eco er einstaklega létt en veitir mikið skjól og hlýju. Einangrunin sem er upphaflega þróuð fyrir útivistarfatnað og svefnpoka fyrir fólk, inniheldur ennurunnar tefjar sem hafa þá eiginleika að halda hita á hundinum þínum jafnvel þótt einangrunin blotni. Kápan er mjúk, lipur, andar vel og er samþjappanleg í pokann sem fylgir með sem gerir þér auðvelt að taka hana með í gönguferðir á köldum dögum.
Mest selda vetrarkápan á íslandi undanfarin ár! 100% vindheld, 20.000mm vatnsheld ytri skel með 20.000 g/m2/24hrs öndun, ásamt góðu sniði gerir Glacier Jacket kápuna áreiðanlega í íslenskri veðráttu þar sem veðrið getur breyst hratt.
Hönnuð fyrir frjálsar hreyfingar ! Glacier jacket 3.0 kápan er hönnuð fyrir aktíva notkun og er með skilvirku sniði sem gerir hundinum þínum kleift að hreyfa sig óhindrað, jafvel á miklum hraða. Kápan kemur í 14 stærðum og hefur fjórar stillingar, svo þegar þú hefur fundið rétta stærð sem passar við baklengd hundsins þíns getur þú á auðveldan máta sérsniðið kápuna að líkama hundsins þíns. Fótabönd með mjúkri teyju sjá til þess að kápan helst í réttri stöðu hvor sem hundurinn þinn er á hreyfingu eða liggur og hvílir sig, en fótaböndin koma einnig í veg fyrir að kápan lyftist í miklum vindi.
Flottir fídusar ! Sérstök taumop gera þér kleift að festa tauminn við beisli eða hálsól undir kápunni. Á bringustykki kápunnar settum við dren op. Þessi op koma í veg fyrir að vatn safnist saman undir brjósti hundsins þíns, sem getur leitt til þess að hundurinn þinn kólni og líði illa.
Kápan hefur góðar endurskins merkingar til að veita mikinn sýnileika í myrkri sem og á dimmum dögum.
Glacier jacket 3.0 kemur í þremur litum, Orange/Black, Teal og Mauve.