Touring bungee adjustable er brautryðjandi taumur með einstaka hönnun sem auðveldar daglegt líf og mætir flestum þörfum.
Þennan taum má meðal annars nota í handfrjálsa göngu, sem venjulegan taum, hlaupa taum, til að binda hundinn örugglega á auðveldan máta, ásamt mörgum fleiri notagildum.
Þrír þættir sem gera Touring bungee adjustable svo fjölhæfan eru:
-Stillanleg ál sylgja gerir þér kleift að stilla lengd taumsins auðveldlega að þínum þörfum. Á einu augnabliki geturðu sett taumin utan um mittið eða yfir öxlina á ská. Í örðu lagi er hægt að stilla lykkjuna þannig að hún passi utan um tré, staur sem gerir það einfalt að tjóðra hundinn á öruggan máta. Þú getur einnig ráðið lengd taumsins með því að færa sylgjuna til.
-Handfang neðst á taumnum nálægt hundinum fyrir öryggisaðstæður, t.d í umferðinni, á fjölmennum stöðum, eða til að taka hundinn fljótt og örugglega til hliðar á gönguleið þegar þú mætir fólki eða öðrum hundum
-Teygjanlegur partur taumsins veitir þér og hundinum þínum hámarks þægjindi þar sem hann dempar högg á stoðkerfi ykkar ef hundurinn tekur hratt af stað eða þú þarft skyndilega að stoppa.
Touring bungee adjustable kemur í tveimur breiddum.
23mm kemur með sjálflæsanlegri karabínu og er ætlaður fyrir stóra og miðlungs stóra hunda. 13mm kemur með skrúfulæstri karabínu og er ætlaður fyrir litla hunda