STRONG LEASH

5.690 kr

Strong leash taumurinn veitir gott grip og góða stýringu á hundinum þínum.

Size

Strong leash er einstaklega sterkur og þæginlegur taumur. Taumurinn er silkimjúkur í hendi en gríðarlega sterkur og endingargóður. Strong leash taumurinn er fáanlegur í þremur mismunandi lengdum og er því handhægur fyrir hvers kyns athafnir. 
Stysti taumurinn er eins metra langur og nýtist vel til daglegra hlýðniæfinga og er vinsæll í Rallý hlýðni,  sá lengsti er þrír metrar og gefur hundinum þínum frelsi til að kanna umhverfið í göngutúrnum.  Ef þú vilt fara milliveginn sem veitir hundinum svigrúm en gefur þér styttri tengingu, þá fæst taumurinn líka í tveggja metra lengd.  

Við haldfangið er auka lykkja sem hægt er að festa í kúkapokahulstur ( mælum með baggybag) eða aðra létta hluti. 

Strong leash taumurinn er kanalsaumaður, sem gerir hann mjög þægilegan í hendi.  3M™ endurskinsborðar á báðum hliðum taumsins gera þig og hundinn þinn sýnileg í myrkri. Þar sem bílljós kasta yfirleitt birtu neðarlega fyrst, eru endurskinsborðarnir staðsettir á þeim enda taumsins sem er næstur hundinum þínum.