ROAM COLLAR

6.190 kr

Sterk og bólstruð ól, hönnuð til að minnka þrýsting að hálsi hundsins ef hann togar. Ólin er stillanleg, unnin úr léttum efnum með stílhreinu sniði, hönnuð fyrir aktívt daglegt líf hundaeiganda.

Color: Black
Size
Lág lagerstaða

 Stillanleg ól með klemmu sem er auðveld í notkun. Þræðið klemmuna í gegnum D-hringinn þegar ólin er sett á hundinn. Þessi hönnun dreyfir öllum þrýstingi jafnt yfir ólina, sem gerir hana þægilega fyrir hundinn þinn að klæðast. 

Innri hlið Roam collar er bólstruð með mjúku og endingargóðu neoprene efni. Allir saumar og brúnir að innanverðu eru saumaðir með sléttu hliðinni í átt að hundinum, þannig tryggjum við mjúkt og jafnt yfirborð til að koma í veg fyrir núning.

Útsett svæði eru styrkt með sterku Hypalon efni. ólin er með tvær endurskinsrendur í kringum bólstraða svæðið sem tryggir mikinn sýnileika og öryggi frá nokkrum sjónarhornum.

D-hringurinn sem taumurinn krækist í er gerður úr áli sem gerir hann léttan án þess að skerða styrkleikann. Stórir tengipunktar fyrir tauma eru auðveldari í notkun og þess vegna er Roam collar ólin með extra stórum D-hring.

Roam collar kemur í  svörtum, appelsínugulum, bláum, fjólubláum, og grænum lit. ólin er fáanleg í stærðum XS-3XL.

 

Stærðartafla

Tæknmilegar upplýsingar