PROTECTOR VEST GPS 2.0 - PÖNTUNARVARA
PÖNTUNARVARA – ekki alltaf til á lager. Stærðir sem eru til á lager sendast innan 1–2 virkra daga.
Aðrar stærðir pöntum við inn frá Non-stop dogwear í Noregi. Afhendingartími á pöntunarvöru er allt að 10 vikur – næsta sending frá Non-stop er áætluð í janúar 2027. Pöntunarvara kemur því ekki fyrir jól.
Þú getur hætt við kaupin og fengið fulla endurgreiðslu hvenær sem er þangað til vestið er sent til þín.
Protector vest GPS 2.0 er gert fyrir hunda sem hlaupa í fjölbreyttri náttúru þar sem bæði sýnileiki og vörn skiptir máli – og fyrir þá sem þurfa að hafa GPS-sendi á hundinum.
Innbyggður GPS-vasi heldur sendinum stöðugum á hundinum og hlífir honum, í stað þess að hann hangi laus á hálsbandi.
Bringuvörn úr aramid-trefja efni, sem er þekkt fyrir góðan styrk og endingu, veitir vörn gegn hvössum gróðri eins og þyrnum og greinum, jafnvel á harðaspretti. Aðrir fletir vestisins eru gerðir úr endingargóðu ripstop efni.
Skær appelsínugulur litur og endurskinsmerkingar veita hundinum þínum sýnileika í skammdeginu, í þéttum gróðri og í lítilli birtu.
Fæst í stærðum 2XS–XL. Mældu ummál háls og brjósts til að finna rétta stærð.
Stærðartafla
| Stærð | 2XS | XS | S | M | L | XL |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Ummál háls | 27-34 cm | 30-40 cm | 32-42 cm | 38-48 cm | 40-52 cm | 42-54 cm |
| Ummál brjóstkassa | 36-52 cm | 46-75 cm | 47-76 cm | 57-82 cm | 65-90 cm | 70-92 cm |
Mældu ummál háls og brjóstkassa hundsins til að finna rétta stærð, eins og myndin sýnir.

