Fyrir hunda sem þurfa vernd gegn snjó, ís, gróðri, leðju, sandi, mítlum og öðrum umhverfisþáttum, býður Protector Suit upp á alhliða vernd án þess að takmarka hreyfingar. Þessi sterkari útgáfa af upprunalega Protector snow gallanum okkar er hönnuð til notkunar allt árið um kring. Gallinn heldur hundinum þínum liprum, vernduðum og þægilegum en sparar þér tíma við þrif eða afþýðingu á snjókögglum í feldi þegar þú kemur heim.
Frá hálsi að skotti og niður að hæklum er gallinn úr mjúku efni sem teygist á fjóra vegu og hreyfist því vel með hundinum þínum. Þessi nýja uppfærsla er nú fáanlegur í 13 stærðum, þar á meðal nýjum minni stærðum sem bætt hefur verið við vegna eftirspurnar frá samfélaginu okkar, og býður upp á nákvæma snið fyrir hunda með allar feldgerðir. Þrönga sniðið verndar viðkvæm svæði eins og magann fyrir snjó og köldum vindi og gerir gallann að góðum valkosti fyrir vernd eftir aðgerðir.
Protector suit er með RAWedge™ tækni okkar sem gerir það auðvelt að klæða hundinn í gallann: Saumlausar en teygjanlegar skálmar koma í veg fyrir að klær festist. Sterkur rennilás að aftan tryggir hraða lokun. Fjarlægjanlegir og teygjanlegir strappar með frönskum rennilás gera þér kleift að herða að skálmunum sem eru anti-slip og koma í veg fyrir að neitt komist inn, hvort sem er í djúpum snjó, leðju eða óhreinu landslagi. Hægt er að bæta við hundasokkum til að auka vörn fyrir loppur.
Forskornar merkingar hjálpa þér við að aðlaga opin svo hundurinn þinn geti losað þvag og saur, þessi karlkyns útgáfa er með mjúku flís innleggi til að vernda eistun í miklum kulda.
Protector suit gallinn kemur í litnum Black/Orange með 3M™ endurskinsmerkingum fyrir aukinn sýnileika.