PROTECTOR SNOW - SÍÐUSTU EINTÖK !

6.196 kr 15.490 kr

Heilgalli fyrir hunda, hannaður til að vernda gegn snjó,ís,kulda og vindi. Þessi spandex galli hefur reynst mörgum feldhunda eigendum að verja feldinn fyrir lyngi og öðrum gróðri í íslenskri náttúru.  

Style
Size
Lág lagerstaða

ATH, Þessi vara hættir - síðustu eintök fara ódýrt á meðan birgðir endast.
Ef stærðin þín er uppseld, þá bendum við á nýju uppfærsluna á þessum galla sem heitir Protector Suit.

Sumir hundar glíma við að snjór og gróður safnast fyrir í feldinum sem getur valdið þeim miklum óþægindum. Með Protector snow gallanum getur hundurinn þinn ævintýrana með þér!

Spandex efni sem teyjist í fjórar áttir gerir hundinum þínum kleift að hreyfa sig á eðlilegan máta. Þessi heilgalli er ekki einangraður til að veita hlýjun, en mun þó hjálpa hundinum þínum að halda hita þar sem feldurinn einangrar betur þegar hann er laus við snjó og klaka. 

Þrátt fyrir að Protector snow sé hannaður fyrir veturinn, þá nýtist hann vel allan ársins hring þar sem hann hlýfir feldinum frá gróðri og mýtlum. 

Protector snow kemur í rakka og tíkar sniði. Gallinn hefur opnanir svo að hundurinn þinn getur losað frá sér þvag og saur. Þessar opnanir eru gerðar með sniðnum stækkunum, svo hægt er að stækka allar opnanir eftir hentugleika svo gallinn passi sem best á hvern og einn hund. Rakka gallarnir eru með fleece bót að innan til þess að verja eistu frá kulda. 

Dökkblár og appelsínugulur gera Protector snow heilgallan mjög sýnilegan og endurskinsmerkingar auka sýnileika í myrkri. 

Protector snow kemur í stærðum XXS-L (tíkur) og XXS-XL (rakkar).

Stærðir eru metnar útfrá þyngd

Tæknilegar upplýsingar