PROTECTOR LIGHT SOCKS

5.690 kr

Endingargóðir hlífðarsokkar úr anti-cut efni, hannaðir til að gefa eftir við náttúrulega þennslu á loppum hundsins þíns. Fullkomið val fyrir göngur og þjálfun á grófu undirlagi.   

 

Size
Lág lagerstaða

Protector light sokkarnir eru sérstaklega þróaðir fyrir hundaíþróttir og göngur, en þeir eru frábær kostur fyrir alla hunda sem þurfa vernd fyrir loppurnar sínar. 

Þéttofin hönnunin býður upp á bæði þægindi og öndun án þess að skerða styrkinn. Efnið veitir mikið skurðþol ( e. cut resistance ).
Sokkarnir veita vörn gegn kulda og salti á göngustígum en eru líka frábært val á grófara þurrlendi. Þeir eru einstaklega þunnir og léttir og veita hundinum þínum framúrskarandi tengingu við undirlagið sem hann hreyfir sig á. Sérstakir fiber-glass þræðir í efninu gefa betri styrk og endingu. 

Teygjanlegur franskur rennilás tryggjir öruggt snið og þægindi fyrir hundinn þinn.

Protector light socks koma fjórir saman í pakka og eru fáanlegir í appelsínugulum lit, í stærðum XS-2XL.

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar