PROTECTOR COVER 2.0

9.390 kr

 

Hafðu auga á hundinum þínum í leik og starfi innan sem utanbæjar allan ársins hring með þessu öfluga sýnileika vesti. Straumlínulaga hönnun fyrir áhyggjulaust lausahlaup.  



Accessory size
Lág lagerstaða

 Protector cover 2.0 er hannað fyrir hunda sem þurfa að sjást, hvort sem það er úr mikilli fjarlægð eða nálægt, í þéttum runnum, skógi eða opnu landslagi. Vestið er hannað í samstarfi við fagfólk og býður upp á bæði sýnileika og endingu án þess að skerða hreyfingu.

Vestið er úr sterku ripstop efni sem þolir slit frá hvössum gróðri og hrjóstrugu umhverfi. Á hliðum vestisins eru ísaumaðir styrktar kantar sem gera það að verkum að vestið liggur vel að hundinum og heldur lögun sinni, jafnvel í miklu roki. Hrein hönnun lágmarkar hættu á að það festist í gróðri. Stillanleg teygjanlega brjóstólin er með öruggri klemmu sem er falin í vestinu og stillanlega teygjusnúran í hálsmáli er hulin fyrir aukið öryggi.  

 Skær appelsínugulur litur og 3M™  endurskinsmerkingar veita hundinum þínum sýnileika í gegnum árstíðarbundnar breytingar, í þéttum gróðri og í lítilli birtu. Vestið hefur rauðan bút á annarri hliðinni og gulan bút á hinni hliðinni sem gerir þér kleift að bera fljótt kennsl á í hvaða átt hundurinn snýr, sem er mikilvægt í veiði, við smölun og leitarvinnu, en getur einnig komið sér vel í lausahlaupi. 

Protector cover hefur því ekki einungis verið vinsælt meðal eigenda veiðihunda á Íslandi undanfarin ár heldur einnig eigendur smalahunda, blindrahunda og björgunarsveitarhunda og býður þessi nýja uppfærsla uppá hentugri staðsetningar til þess að merkja vestin. 
Einnig hefur protector cover verið mikið notað af eigendum sem stunda mikið lausagöngur með hundana sína allt árið um kring. 

Hypalon lykkja við aftan við hálsmáið nýtist vel til þess að festa ljós eða nafnspjald, lykkjan aftast á vestinu er ætluð fyrir sporalínu eða langa línu. 

Protector cover 2.0 kemur í stærðum XS - XL. 

Algengar spurningar:

Hvernig á vestið að liggja á hundinum ? 

Protector cover 2.0 ætti að liggja þétt að hundinum svo vestið haldist á sínum stað og til þess að koma í veg fyrir nuddsár. Gættu þess að stilla hálsmál og ólina undir brjóstið hæfilega án þess að þrengja að hundinum. 

Hver er munurinn á  Protector cover 2.0 og Protector cover?

Protector cover 2.0 er byggt á styrkleikum undanfara síns með nokkrum góðum uppfærslum. Teyjusnúran í hálsmálinu er nú algjörlega hulin til þess að minnka líkur á því að snúran geti flækst í greinum eða öðru í umhverfinu. Við bættum einnig við Hypolon lykkju aftan við hálsmálið til að festa ljós eða nafnspjald. 
Endurskins merkingar hafa verið færðar til á vestinu svo nú er betra pláss til þess að merkja vestið t.d. fyrir björgunarsveitir. 

Hversvegna eru mismunandi litir á sitthvorri hlið vestisins ?

Litirnir tveir gera þér kleift að sjá í hvaða átt hundurinn stefnir eða bendir á löngu færi. 

Til þess að finna rétta stærð, mældu ummál hálssins líkt og myndin sýnir

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar