LINE HARNESS GRIP WD

13.990 kr

Skilvirkt vinnuhunda beisli hannað til þess að mæta kröfum fyrir þjálfun og vinnu með öfluga hunda. 

Color: Olive
Size
Lág lagerstaða

Hið fjölhæfa Line harness grip WD er með handfangi til að auðvelda stýringu og stuðning við verkefni hundsins þíns. Handfangið er staðsett þannig að minni líkur eru á að það festist í gróðri eða öðrum fyrirstöðum á sama tíma og það veitir auðveldan aðgang til að grípa hratt inní þegar þörf er á að aðstoða hundinn þinn. 

Auk hins hefðbundna festipunkts að aftan er Line harness grip WD útbúið sérstökum tengipunkti undir brjóstinu til að festa sporlínu. Þetta gerir hundinum þínum kleift að hreyfa sig frjálst og ótakmarkað á meðan hann er að rekja slóð.

Beislið hentar vel fyrir mótstöðuþjálfun eins og að hlaupa, hjóla eða skíða með hunda sem toga hóflega. Y-laga hálsopið veitir frjálsar axlarhreyfingar og lágmarks öndunartakmarkanir.

Vörurnar í vinnuhundalínunni okkar eru unnar úr sterkum efnum og bjóða upp á óviðjafnanlegan styrk og endingu. Við höfum valið sylgjur úr málmi fyrir aukið öryggi þegar þú aðstoðar hundinn þinn yfir hindranir. Að auki eru óvarin svæði beislsins styrkt með Hypalon efni sem er þekkt fyrir slitþol, sem eykur endingu beislsins enn frekar.

Hægt er að sérsníða beisli hundsins þíns með merkingum með frönskum rennilásum sem festir eru á beislið.
Line harness grip WD kemur í litum, Olive ( stærð 4-8 ) og Black ( stærð 4-9 )

Stærðartafla og tæknilegar upplýsingar