LINE HARNESS GRIP

12.990 kr

Skilvirkt og fjölhæft beisli fyrir hversdagsleikan með handfangi á bakinu fyrir aukna stjórn.  Rétt eins og Line harness 5.0, þá veitir beislið hundinum hámarks hreyfigetu og þægindi.

Size

Line harness grip er þróað út frá sívinsæla Line harness 5.0 beilsinu og hefur því alla sömu frábæru eiginleka þess, en með auka haldfangi við miðju baki hundsins.  Haldfangið nýtist vel í göngur og aðrar ástundir þar sem að maður gæti þurft að aðstoða hundinn yfir hvers kyns hindranir og veitir hundi og eiganda auka öryggi í aðstæðum þar sem að maður myndi vilja halda hundinum nálægt sér.

Líkt og Line harness 5.0 er Line harness grip betrumbætt útgáfa af upprunalega beislinu okkar.  Y-hálsmálið gerir öxlunu kleift að hreifast mótstöðulaust og heftir ekki öndunarveginn.  Beislið er hægt að stilla utan brjóstkassan og er með tvær Duraflex® sylgjur til að smella beislinu af og á.

Line harness grip hefur nokkra mismunandi festipunkta til að tengja taum, sem gerir beisið mjög fjölhæft. Auk klassíska festipunktsins á bakinu er festipunktur fyrir sporalínu undir bringu. Frá stærð 3 og uppúr er þriðji festipunkturinn að framan á bringu fyrir milda togstýringu sem getur nýst við taumgöngu þjálfanir.

Líðan og heilbrigði hundsins er afar mikilvæg við hönnun allra beisla hjá Non-stop dogwear.  Skilvirk hönnun krefst mikillar nákvæmni við hvert smáatriði. Innri bólstrun er alltaf samansett á þann máta að ytri lög skarast á án þess að það myndist harðir kanntar. Jöfn og slétt samskeiti auka þægindi og koma í veg fyrir ertingu og að feldurinn þæfist. Beislin eru unnin úr endingargóðu, þéttofnu næloni og eru með frumufroðubólstrun "cell foam base" til að sporna við rakadrægni. Sérhver saumur hefur sína sléttu hlið að líkama hundsins, allt til að tryggja að beislið skaði ekki hundinn. Þessi hönnunarfræði sem tekur mið út frá stoðkerfi hundsins, hreyfifrelsi og óheftri öndun er vörumerki okkar.
3M™ endurskin gera hundinn þinn sýnilegan frá nokkrum sjónarhornum.

Line harness grip kemur í stærð 1-9 í svörtum lit. 

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar