Þessi nýja útgáfa af vinsælu Glacier wool kápunni okkar er hönnuð til þess að verja hundinn þinn fyrir frosthörku og ófyrirsjáanlegu veðri. Betrumbætt vatnsfráhrindandi og vindheld ytri skel þolir mikinn snjó og rigningu og heldur hundinum þínum hlýjum, þurrum og þægilegum jafnvel í verstu veðrum. Þétt millilag úr ECO ( vistvænni ) einangrun, pöruð með mjúkri Merino ull veitir einstaka hlýju, jafnvel á köldustu dögum.
Íslendingar elska ullina, enda þekkjum við eiginleika hennar vel og því hefur Glacier wool jacket 2.0, forveri Glacier wool jacket 3.0 verið ein vinsælasta vetrarkápan fyrir hunda á Íslandi undanfarin ár.
Hin náttúrulega og sjálfbæra ull er frammúrskarandi sem efnisval fyrir getu sína til þess að draga í sig raka án þess að verða blaut eða köld. Hún andar mjög vel og heldur hitastigi hundsins þíns í fullkomnu jafnvægi, hvort sem er í köldu veðri eða í upphitun fyrir áreynslu eða til þess að halda hita á vöðvum eftir áreynslu.
Glacier wool jacket 3.0 kápan er hönnuð fyrir aktíva notkun og er með skilvirku sniði sem gerir hundinum þínum kleift að hreyfa sig óhindrað, jafvel á miklum hraða. Kápan kemur í 14 stærðum og hefur fjórar stillingar, svo þegar þú hefur fundið rétta stærð sem passar við baklengd hundsins þíns getur þú á auðveldan máta sérsniðið kápuna að líkama hundsins þíns. Fótabönd með mjúkri teyju sjá til þess að kápan helst í réttri stöðu hvor sem hundurinn þinn er á hreyfingu eða liggur og hvílir sig, en fótaböndin koma einnig í veg fyrir að kápan lyftist í miklum vindi.
Flottir fídusar !
Sérstök taumop gera þér kleift að festa tauminn við beisli eða hálsól undir kápunni. Á bringustykki kápunnar settum við dren op. Þessi op koma í veg fyrir að vatn safnist saman undir brjósti hundsins þíns, sem getur leitt til þess að hundurinn þinn kólni og líði illa.
Kápan hefur góðar endurskins merkingar til að veita mikinn sýnileika í myrkri sem og á dimmum dögum.
Glacier wool jacket 3.0 kemur í tveimur litum; Green og Grey/Sand.