GLACIER DOG JACKET WD

22.990 kr

Létt og einangrandi kápa fyrir hraða endurheimt og útivist í köldum veðrum. 

Size

Glacier dog jacket WD kápan er hönnuð til að hámarka og lengja frammistöðu hundsins þíns við krefjandi veðurskilyrði. Kraftmikil skel hennar er vindheld, vatnsfráhrindandi og dregur úr hávaða við hreyfingu. Þessi jakki er einangraður með PrimaLoft® Black Insulation Eco, sem almennt er notaður í íþrótta og útivistarfatnað fyrir fólk, og veitir hlýju og þægindi.

Snið kápunar er hannað til þess að verja alla stóru vöðvahópa hundsins þíns ásamt því að veita honum fullan hreyfanleika í kápunni. Fótabönd halda kápunni kjurri í réttri stöðu. 

Sérstök taumop gera þér kleift að tengja taum í beisli eða hálsól undir jakkanum. Frárennslisgöt á bringu koma í veg fyrir að vatn safnist saman í feldi hundsins. 

Kápan bíður uppá að festa merkingar og endurskinsmerki með frönskum rennilás á kápuna. 

Þegar kápan er ekki í notkun er auðvlet að pakka henni saman á fyrirferðarlítinn máta í netapoka sem fylgir með. 

Glacier dog jacket WD kemur í litnum Olive í stærðum 40-70. 

 

Til þess að mæla baklengd hundsins skaltu mæla frá herðarblöðum og að skottrót líkt og myndin sýnir

Stærðir

Tæknilegar upplýsingar