FRICTION LONG LINE

10.590 kr

Löng lína með gúmmí fyrir sérstaklega gott grip. Línan rennur þó auðveldlega í gegnum gróður þegar hundurinn þinn er að spora eða hlaupa um.

Size
Lág lagerstaða

Friction long line er löng lína með gúmmí þráðum fyrir sérstaklega gott grip sem hentar vel fyrir sporanir.  Línan rennur auðveldlega yfir landslagið án þess að flækjast og veitir hundinum svigrúm og frelsi til að spora án truflunar.  Línan hefur einnig gagnast mjög vel til að æfa innkall og byggja upp góðar venjur í lausagöngu.  

Línan er létt og auðveld meðhöndlunar. Gúmmí saumarnir liggja neðar en ytri brúnir línunar sem gerir það að verkum að línan rennur léttilega í gegnum gróft undirlag. Gúmmíið veitir gott grip í öllum veðrum. Línan virkar einnig vel í vatni. 

Við völdum endingargóð og slitsterk efni sem þola slit sem stafa af grófum jarðvegi og gróðri. Saumurinn við karabínuna er styrktur með Hypalon, sem einnig er að finna aftast á línunni, svo það er auðvelt að finna þegar línan er að klárast. 

Friction long line línan er með sjálflæsandi karabínu sem veitir þér öryggi fyrir hundinn þinn. Karabínan snýst um sjálfa sig sem kemur í veg fyrir að línan vindi of mikið uppá sig. 

Skær appelsínuguli liturinn veitir góðan sýnileika.  Línan er fáanleg í tveimur lengdum, 10 metra og 15 metra.