FLEECE HZ MENS

14.990 kr

Þægileg hálfrennd létt flíspeysa með samfelldum vasa, fullkomin fyrir útiveru ævintýri með hundinum þínum. 

Size

FLEECE HZ MENS - XS er tímabundið uppseld, en þú getur forpantað hana. Við pöntum hana strax fyrir þig og hún er yfirleitt komin til okkar innan 5-7 virkra daga og við höfum samband um leið og hún kemur.

Fleece HZ peysan er nýja flíspeysan þín sem þú elskar að klæðast við allar aðstæður. Hvort sem það eru göngur í köldu veðri, fjallgöngur, útilegur, hundaþjálfun eða dagsdaglegt amstur. Létt og þunn og því auðvled að klæðast undir jakka sem miðlag - tilvalin fyrir kaldari daga eða venjulegt íslenskt sumar. 

Peysan sem er gerð úr yfir 70% endurunnu flísefni er einstaklega mjúk og veitir þér samstundis hlýju. 

Stoff og faldur eru úr teygjanlegu efni sem gefur þér gott og þétt snið sem heldur hita inni og hreyfist vel með þér. 

Tvær rennilása opnanir á hliðum veita aðgang að stórum vasa: fullkomi til að geyma hanska, hundanammi eða aðrar nauðsynjar. Op fyrir þumalfingur heldur hita á höndum og ermunum á sínum stað. Styrkt softshell efni á úlnliðum og lófum draga úr sliti í hundatengdum athöfnum. 

Við erum virkilega ánægð með þessa nýju viðbót í fatalínu Non-stop dogwear, klæðilegt snið, góð ermalengd og venjulegar stærðir, efnið hnökrar ekki og heldur sér ótrúlega vel.

Fleece HZ peysan kemur í litnum Sand í  KVK og KK (unisex) sniði í stærðum XS - 2XL á meðan birgðir endast. 

* venjulegar stærðir, samanber að Hoodie HZ/FZ Polartec flíspeysurnar (græna og svarta) voru fremur litlar stærðir. 

Stærðartafla KK (unisex)