FJORD OVERALL RAINCOAT

17.490 kr

Vatnsheldur og vindheldur regngalli fyrir allan líkamann, hannaður með Freemotion tech™ efni sem leyfir hundinum þínum hlaupa án þess að takmarka hreyfingar.

 

Color: Black/orange
size

FJORD OVERALL RAINCOAT - Black/orange / 27 er tímabundið uppseld, en þú getur forpantað hana. Við pöntum hana strax fyrir þig og hún er yfirleitt komin til okkar innan 5-7 virkra daga og við höfum samband um leið og hún kemur.

Það getur verið erfitt verkefni að halda hundinum þínum hreinum og þurrum með heilgalla án þess að þurfa að gera málamiðlanir hvað varðar gott snið, þægindi og hreyfanleika.

Innblásin af viðbrögðum frá okkar trygga Non-stop samfélagi, mátum við þessar áskoranir og hönnuðum Fjord overall raincoat til að vernda hundinn þinn algjörlega fyrir leðju og rigningu án þess að fórna hreyfifrelsi hundsins. 

Með því að nota Freemotion tech™ efnið okkar er hver framfótur og handarkrikasvæði gerður úr fimm "púslum" til að gera hundinum þínum kleift að taka full skref á meðan hann hleypur og leikur sér. Heilgallinn hefur fjórhliða teygjuefni (efni sem teyjist á fjóra vegur ) sem er sniðið mjög nákvæmlega saman með mörgum "púslum"  til að veita mikið hreyfisvið sem hundurinn þinn þarfnast til að líða frjáls og óheftur.

Skelin er vind og vatnsheld með 13.000mm vatnsheldni.

Fjord overall raincoat gallinn nær þéttu sniði án þess að vera fyrirferðarmikill og er mjög stillanlegur með sjö aðlögunarpunktum, sem gerir hann að kjörnum vali fyrir allar týpur og tegundir hunda. Brjóst, handarkrika og mittis svæði eru stillt með mjúkum teygjusnúrum sem er komið fyrir í fyrirferðalitlum faldi inni í gallanum. Þrjár ytri  teygjusnúrur gera þér kleift að sníða gallan að haus, háls og skotti fyrir fullkomið snið.

Mjúku, saumlausu skálmarnar enda með tveimur stroffum til að renna loppum hundsins þíns auðveldlega í gegn. Hægt er að rúlla þeim allt að þrisvar sinnum upp til að þess að skálmalengd passi fullkomlega við fótalengd hundsins þíns.

Heilgallinn hefur opnun á baki til þess að tengja taum við beisli hundsins þíns, einnig er gallinn vel búinn með endurskinsmerkingum til að auka sýnileika og öryggi hundsins þíns á dimmum dögum.

Fjord overall raincoat kemur í stærðum 27 til 80 í litunum Black/orange og Teal

 

Til þess að finna rétta stærð mælir þú baklengd hundsins þíns frá þeim stað það sem háls og herðar mætast að skottrót

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar