DOG RESCUE SLING PRO

7.590 kr

Ofurléttur björgunar burðarpoki sem björgunarsérfræðingar treysta. Burðarpokinn aðstoðar þig að bera hundinn þinn á öruggan máta ef óvænt meiðsli breyta gönguferðinni í neyðarástand. Nauðsynlegur hluti af skyndihjálparpakka hundsins!

 

 

Size
Lág lagerstaða

Ein sekúnda er allt sem þarf til þess að útivist breytist í björgunarleiðangur.

Þegar hver mínúta telur er Dog rescue sling hannaður til að hjálpa þér að bera hundinn þinn í öruggt skjól ef hann hefur slasast eða getur ekki gengið. Margir hundaeigendur hafa staðið frammi fyrir þessari áskorun á hvaða slóð sem er, mun algengara en þig grunar! Af þeim ástæðum var Dog rescue sling burðarpokinn þróaður í samstarfi við Norsku björgunarsveitina (NRH), samstarfið skilaði sér í vöru sem uppfyllir ströngustu kröfur um áreiðanleika og stöðuleika, jafnvel við erfiðar aðstæður. 

Þetta er eina varan sem við höfum framleitt sem við vonum að þú þurfir aldrei að nota. 

Með fjórum opum fyrir fætur dreyfir burðarpokinn þyngd hundsins jafnt og sterk böndin tryggja öruggt grip, hvort sem þú berð hundinn að framan, á hlið eða að aftan. Þú stillir lengdina á böndunum á fljótlegan og auðveldan máta með því að binda hnút á þau svo burðarpokinn passi þér sem best á göngu. 

Léttur og pakkanlegur björgunar burðarpoki sem tekur lítið pláss, auðveldur í notkun, tryggir öryggi þegar þú þarft að bera hundinn þinn, jafnvel einsamall/einsömul. 

Dog rescue sling PRO er fáanlegur í litnum Orange í stærðum S-XL. 

Til þess að finna rétta stærð, mældu bil á milli fótleggja líkt og myndin sýnir

Stærðartafla og tæknilegar upplýsingar