CONTACT BOOTIE HIGH

4.090 kr

Háir hundasokkar hannaðir til að verja loppur hundsins þíns í snjó og frosti.

 

Size

Contact bootie high sokkarnir veita framúrskarandi tengingu á milli loppu hundsins þíns og undirlagsins sem hann gengur á. Þeir leyfa náttúrulega hreyfingu loppunnar þegar loppan þrýstist niður í undirlagið sem er sérstaklega mikilvægt á lengri vegalengdum.

Tveir teyjanlegir franskir rennilásar tryggja gott snið og þægindi fyrir hundinn þinn. 

Í meira en áratug hafa kúskar ( e. mushers)  og ævintýrafólk prófað sokkana okkar á vegelengd sem jafngildir sex sinnum umhverfis jörðina. Saman höfum við fundið hið fullkomna efni til að vernda loppuna, veita framúrskarandi endingu* og þægindi.

Contact bootie high sokkarnir koma fjórir saman í pakka. Þeir eru fáanlegir í appelsínugulum lit í stærðum 3XS-2XL, svo þeir passa á aktíva hunda í öllum stærðum og gerðum. 

*Vinsamlegast athugið að hundasokkar munu verða fyrir sliti. Þættir eins og tegund undirlags, klóalengd hundsins þíns og vegalengdin sem er farin, stuðla að endingu sokkana. Contact sokkarnir eru sérstaklega hannaðir til notkunar á snjó og ís en reynast þó góð vörn á þurrlendi líka.  Eru í sömu stærðum og Long distance booties.

Til þess að finna rétta stærð, mælir þú breiddina á loppu hundsins þíns líkt og á myndinni að neðan

Stærðartafla og tæknilegar upplýsingar