Trekking line harness CLIP'N™

12,590 kr

Skilvirkt og bólstrað beisli með opnanlegu hálsmáli. Hvort sem um er að ræða daglega göngutúra, fjallaferðir og allt þar á milli, þá veitir beislið þægilegan stuðning við allar hreyfingar hundsins. 

Color: Ice blue
Size
Lág lagerstaða

Trekking line harness CLIP’N™ er ný útfærsla af vinsælusta hversdagsbeisli Non-stop dogwear og hentar sérstaklega vel hundum sem líkar illa við að fá beisli yfir höfuðið.

Beislið byggir á hinni margreyndu hönnun Line harness, sem hefur verið þróuð og betrumbætt í meira en áratug. Létt Y-laga hönnunin heldur axlasvæði, handarkrikum og öndunarvegi hundsins frjálsum og veitir hundinum því gott hreyfifrelsi. Beislið fæst í mörgum stærðum og er með stillanlegum ólum yfir bringu, svo auðvelt er stilla beislið rétt fyrir mismunandi líkamsbyggingu. Mjúk bólstrun á álagssvæðum dregur úr núningi og dempar högg.

CLIP'N™ sylgjan við hálsinn gerir það fljótlegt og þægilegt að setja beislið á og taka það af, án þess að þurfa að draga það yfir höfuð hundsins. Sylgjan liggur ofan á þykkri bólstrun sem kemur í veg fyrir óþægilega þrýstipunkta og er fest með frönskum rennilás sem heldur henni sylgjunni og beislinu vel á sínum stað.

Trekking line harness CLIP’N™ er framleitt úr vönduðum og slitsterkum efnum, meðal annars með Hypalon-styrkingum og Duraflex® sylgjum. Beislið er hannað til að þola mikla notkun og er frábær kostur í göngur, sporavinnu og hversdagsleg ævintýri með hundinum þínum.

Taumurinn festist í sterkan D-hring úr stáli á baki beislisins. Frá stærð 3 er einnig styrkt festing framan á brjóstinu sem hægt er að nota þegar þörf er á aukinni stjórn eða til að draga úr togi.

Öflug 3M™ endurskinsrönd liggur meðfram beislinu og eykur sýnileika hundsins úr öllum áttum þegar birtuskilyrði eru léleg.

Mældu ummál brjóstkassa og ummál háls ( eins neðarlega og hægt er ) til að finna rétta stærð

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar