FJORD RAINCOAT 2.0

16,490 kr

Pöntunarvara — afhending á 5–9 virkum dögum

Þessir litir og stærðir eru ekki á lager hjá okkur núna, en eru til hjá Non-stop Dogwear í Noregi: Mauve — 36, 60, 65 · Orange/Black — 36, 40, 50, 60, 80 · Sand — 60, 65 · Teal — 30, 36, 45, 60, 65, 70. Við sendum pöntunina áfram á næsta pöntunardegi — við pöntum tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum — og varan kemur til þín á 5–9 virkum dögum.

Þú greiðir ekkert aukalega fyrir þetta. Ef varan er óvænt ekki til endurgreiðum við strax og að fullu.

Aðrar stærðir sem eru til á lager hjá okkur sendast eins og venjulega.

Vind og vatnsheld regnkápa með einstaka öndun og 20.000mm vatnsheldni sem heldur hundinum þínum þurrum og þægilegum í jafnvel í úrhellis rigningu. 

Fjord raincoat 2.0 er ný uppfærsla af okkar vinsælu Fjord regnkápum sem hafa sannað gildi sitt í íslenskum aðstæðum síðustu árin. Kápan er vind og vatnsheld, hönnuð með hreyfingar hundsins í forgrunni og leyfir hundinum þínum að hreyfa sig óhindrað í rigningu. 

Veðurfar ætti aldrei að koma í veg fyrir að besti vinur þinn skemmti sér! Við höfum uppfært vinsælustu hunda regnkápuna með meira endurunnu efni og aukið virkni hennar. Kápan er nú með 20.000mm vatnsheldni til að þola mesta mögulega úrhelli og 20.000 g/m2/24hr öndunargetu til að draga úr rakamyndun og leyfa betri öndun.

Óhindruð hreyfigeta! Þegar hundurinn þinn klæðist kápunni getur hann samt hlaupið á fullum hraða, óheftur. Axlarstykkið hefur verið uppfært með enn betra sniði. Fjöldi stærða ( frá 24 til 90) ásamt stillanlegum teygju reimum við háls, herðar og skott gera kápunni kleift að hylja líkamann vel og langur kragi verndar hálsinn, en hann er einnig hægt að bretta niður eftir þörfum.

Smáatriðin skipta máli! Regnkápan er með mjúk fótabönd sjá til þess að kápan helst í réttri stöðu og koma í vef fyrir að hún blási upp í miklu roki. Frárennslisgöt á bringustykki kápunnar koma í veg fyrir að vatn safnist undir bringu hundsins þíns, sem gæti valdið hundinum þínum óþægindum.

Endurskins merkingar veita mikinn sýnileika í myrkri og tryggir öryggi hundsins þíns. Fjord raincoat 2.0 er létt og pakkast auðveldlega í meðfylgjandi poka. 

Sérstakt op fyrir taum gerir þér kleift að festa taum við beisli í gegnum kápuna. Fjord raincoaat 2.0 er létt kápa og pakkast auðveldlega í meðfylgjandi poka svo lítið fer fyrir henni, svo þú getur haft hana með þér hvenær sem er. 

Fjord raincoat 2.0 kemur í fjórum litum Black/Orange, Grey/Sand, Teal og Mauve.

Color: Sand
Size
Lág lagerstaða

Uppselt

Mál — Fjord Raincoat 2.0

Stærð2427303336404550556065708090
Þyngd120 g140 g150 g161 g172 g179 g188 g200 g220 g260 g290 g320 g360 g400 g
Hámarks ummál höfuðs31 cm34 cm36 cm38 cm39 cm44 cm46 cm47 cm51 cm57 cm58 cm59 cm68 cm74 cm
Hámarks ummál brjóstkassa37 cm42 cm45 cm51 cm56 cm61 cm66 cm71 cm76 cm81 cm88 cm91 cm98 cm107 cm
Baklengd25 cm28 cm32 cm35 cm38 cm42 cm47 cm53 cm58 cm63 cm68 cm73 cm81 cm90 cm