PROTECTOR VEST GPS - SÍÐUSTU EINTÖK !

10.493 kr 14.990 kr

Slitsterkt sýnileikavesti með innbyggðum GPS vasa. Aramid-trefja styrkt bringuvörn sendar hundinn þinn gegn hvössum steinum og gróðri. 

Size
Lág lagerstaða

Protector vest GPS er traust veiðivesti með vatnsheldri ripstop skel og bringuvörn úr  aramid-trefja efni sem er þekkt fyrir styrk og góða endingu. Vestið hefur sérstakan vasa á bakinu til að vera GPS tæki. Með því að láta hundinn þinn bera GPS tækið á bakinu í stað þess að hann beri það á hálsólinni, minkar þú álag á hásvöðva hundsins þíns og tækið helst öruggara í vasa vestisins.

Litaðar merkingar á hvorri hlið vestisins, rautt á hægri hlið og gult á vinstri hlið, gera það auðvelt að sjá úr fjarlægð í hvaða átt hundurinn vísar. Mettaður appelsínugulur litur vestisins, endurskinsprentun og 3M endurskins rendur veita hundinum þínum góðan mikinn sýnileika í umhverfinu. 
Á bakhlið vestsins er lykkja til að festa sporalínu. Á hliðum vestisins eru ísaumaðir styrktar kanntar sem gera það að verkum að vestið liggur vel að hundinu og heldur alltaf lögun sinni, jafnvel í miklu roki. 

Vestið er ekki bara vinsælt fyrir veiðihunda, heldur einnig smalahunda, björgunarsveita hunda og aðra hunda sem stunda lausahlaup í náttúrunni. 

Auðvelt er að aðlaga Protector vest GPS að hundinum þínum með því að stilla teyjuna um hálsinn sem er falin í GPS vasanum. Ólar á brjóststykkinu eru einnig stillanlegar en þær eru festar með duraflex klemmum sem eru faldar í hliðum vestisins og flækjast því ekki í gróðrinum í náttúrunni. 

Protector vest GPS er fáanlegt í stærðum XXS-XL og passar því á flestar stærðir veiði og smalahunda. 

Til þess að finna rétta stærð skaltu mæla ummál háls og brjósts líkt og myndin sýnir

Stærðir og tæknilegar upplýsingar