PROTECTOR VEST 2.0

12.990 kr

Slitsterkt sýnileikavesti með aramid-trefja styrktri bringuvörn sem ver hundinn þinn gegn hvössum steinum og gróðri. 

 

Accessory size
Lág lagerstaða

Protector vest 2.0 er gert fyrir hunda sem hlaupa í fjölbreyttri náttúru þar sem bæði sýnileiki og vörn skiptir máli. 

Bringuvörn úr aramid-trefja efni sem er þekkt fyrir góðan styrk og endingu veita lífsnauðsynlega vörn gegn hvössum gróðri eins og þyrnum og greinum, jafnvel á harðaspretti. Aðrir fletir vestisins eru gerðir úr endingargóðu ripstop efni. Á hliðum vestisins eru ísaumaðir styrktar kanntar sem gera það að verkum að vestið liggur vel að hundinum og heldur lögun sinni, jafnvel í miklu roki. 

Skær appelsínugulur litur og  3M™ endurskinsmerkingar veita hundinum þínum sýnileika í gegnum árstíðarbundnar breytingar, í þéttum gróðri og í lítilli birtu. Vestið hefur rauðan búr á annarri hliðinni og gulan búr á hinni hliðinni sem gerir þér kleift að bera fljótt kennsl á í hvaða átt hundurinn snýr, sem er mikilvægt í veiði, við smölun og leitarvinnu en getur einnig komið sér vel í lausahlaupi. 

Protector vest hefur þvi ekki einungis verið vinsælt meðal eigenda veiðihunda á íslandi undanfarin ár heldur einnig meðal eigenda smalahunda, blindrahunda og bjrgunarsveitahunda og býður þessi nýja uppfærsla uppá hentugri staðsetningar til þess að merkja vestin. 
einnig hefur Protector vest verið mikið notað af eigendum sem stunda tíðar lausagöngur með hundana sína allt árið um kring. 

Til þess að minnka líkur á því að hundurinn festi sig í gróðri eða öðru í umhverfinu eru festingarnar fyrir brjóststykkið festar á öruggan hátt í smellur sem eru faldar í hliðum vestisins. Teyjusnúran til að stilla hálsmálið er einnig falin fyrir aukið öruggi. 

Styrkt lykkja aftast á vestinu býður uppá að festa langa línu og Hypalon lykkjan aftan við hálsmálið gerir þér kleift að festa ljós eða nafn spjald. 

Protector cover 2.0 kemur í stærðum 2XS - XL. 

Til þess að finna rétta stærð skaltu mæla ummál háls og brjósts líkt og myndin sýnir

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar