ATH, Þessi vara hættir - síðustu eintök fara ódýrt á meðan birgðir endast.
Ef stærðin þín er uppseld, þá bendum við á nýju uppfærsluna sem heitir Glacier jacket 3.0
Leyfðu okkur að kynna þig fyrir Glacier Jacket 2.0 sem hefur slegið rækilega í gegn í skandinavíu og verið mest selda kápan á íslandi undanfarin ár!
Glacier Jacket 2.0 er léttu og þægileg vetrarkápa fyrir hunda. Kápan er einangruð með PrimaLoft® Black Insulation Eco, einangrunarefni sem er almennt notað í fatnað fyrir útivistarfólk. Einangrunin er mjög létt og mjúk en veitir hundinum þínum þó alla þá hlýju sem hann þarf á að halda í hvaða veðri sem er. Einangrunin virkar vel og heldur hita jafnel þó hún blotni.
Ysta lag kápunnar er vindheld og vatnsfráhrindandi skel. Álagssvæði eru styrkt til þess að gefa meiri vörn við veðri og grófum gróðri í náttúrunni.
Þessi hlýja kápa var hönnuð til að veita hundinum þínum fullt hreyfifrelsi, hönnun kápunar tekur mið af því að hundar þurfa að geta viðhaldið óheftum hreyfingum þegar þeir klæðast búnaði til þess að halda á sér hita á köldum dögum. Kápuna má nota í göngum, lausahlaupi, í þjálfun sem og þegar hundurinn er í pásu og hefur því t.d. verið mjög vinsæl meðal veiði og björgunarsveita hundaeigenda.
Glacier Jacket 2.0 er hefur fjórar stillingar, svo þegar þú hefur fundið rétta stærð sem passar við baklengd hundsins þíns getur þú á auðveldan máta sérsniðið kápuna að líkama hundsins þíns.
Fótabönd með mjúkri teyju sjá til þess að kápan helst í réttri stöðu hvor sem hundurinn þinn er á hreyfingu eða liggur og hvílir sig, en fótaböndin koma einnig í veg fyrir að kápan lyftist í miklum vindi.
Sérstök taumop gera þér kleift að festa tauminn við beisli eða hálsól undir kápunni.
Á bringustykki kápunnar settum við dren op. Þessi op koma í veg fyrir að vatn safnist saman undir brjósti hundsins þíns, sem getur leitt til þess að hundurinn þinn kólni og líði illa.
Kápan hefur góðar endurskins merkingar til að veita mikinn sýnileika í myrkri sem og á dimmum dögum.
Kápunni má auðveldlega pakka niður og geyma í netapokanum sem henni fylgir.
Glacier Jacket 2.0 kemur í stærðum 24-90 fyrir stóra sem smáa hunda og er fáalegur í þremur litum, Black/Orange, Navy/Teal/Red og Purple/Pink.