ÓSTÖÐVANDI CANICROSS 101
Canicross hlaupanámskeiðin okkar hafa slegið rækilega í gegn, enda fátt betra en útivist og hreyfing með hundum!
Viltu vera með í ört stækkandi
hlaupasamfélagi hundaeiganda á Íslandi ?
Langar þig til að byrja að skokka/hlaupa með hundinn þinn?
Áttu hvolp / ungan hund sem þig langar til að verði
hlaupafélagi í framtíðinni ?
Langar þig til að taka þátt í viðburðum eins
og Hundahlaupinu ?
Ertu búin að æfa og keppa í mörg ár og
langar til að vita hvað er nýjast í þjálfunaraðferðum ?
Viltu bæta frammistöðu þína og hundsins þíns ?
Stoppar hundurinn þinn óþarflega oft til að þefa og pissa í hlaupatúrnum ?
Er hundurinn þinn sprækur í byrjun en latur þegar á líður, þú skilur ekki hversvegna því hann getur léttilega hlaupið þessa vegalengd ?
Vantar ráð til að leiðrétta óæskilega hegðun hundsins og/eða hjálpa honum að skilja betur sitt hlutverk í hlaupatúrnum ?
Ertu að skokka/hlaupa reglulega en hundurinn verður eftir heima ?
Langar þig til að æfa vikulega í skemmtilegum hópi hundaeiganda (á höfuðborgarsvæðinu) ?
Ef eitthvað af eftirtöldu á við, þá er þetta námskeið fyrir þig !

Kennari námskeiðsins er Kolbrún Arna dýrahjúkrunarfræðingur og hundasjúkraþjálfari.
Kolbrún hefur stundað Canicross í 18 ár og tekið þátt í keppnum bæði hér heima og erlendis, en hún stundar sportið fyrir aukna gleði og hreysti fyrir sig og hundana sína.
Árið 2022 hélt Kolbrún fyrsta opinbera víðavangshlaupið fyrir hundaeigendur á Íslandi í samstarfi við UMFÍ og árið 2024 var Hundahlaupið haldið í annað sinn með 200 þátttakendur og þriðja sinn árið 2025 með 300 þátttakendum á öllum aldri og mismunandi getustigi.
Sportið hefur því fest sig rækilega í sessi hér á landi og eru námskeiðin hugsuð til þess að hjálpa hundaeigendum að leggja góðan grunn fyrir sig og hundinn sinn og blómstra í þessari skemmtilegu útivist.
Kolbrún brennur fyrir því að efla lýðheilsu hunda og manna á Íslandi en eins og Kolbrún segir þá er canicross hreyfing sem allir hundaeigendur geta stundað, því tilgangurinn er að vera úti og hreyfa sig með hundinum sínum, hver með sínu sniði.
Hvort sem þú vilt hlaupa, skokka eða ganga þá er canicross tilvalin leið til þess að efla tengsl hunds og eiganda í sameiginlegu verkefni sem veitir hundinum andlega og líkamlega örvun á allt annan máta en hinn hefðbundni göngutúr.
Kolbrún telur upp helstu kosti fyrir hunda og eigendur að stunda canicross
- Öðruvísi andleg og líkamleg útrás
- Endorfín
- Styrkir samband hunds og eiganda
- Eigandinn er meira með "puttann á púlsinum" hvað varðar líkamlega heilsu hundsins
- Eykur sjálfstraust hundsins
- Eykur styrk í vöðvum sem hann notar ekki á sama máta öllu jafna
- Sýningarhundar, aukinn vöðvastyrkur, betri bringa, betri topplína og meira drif
- Hraustari hundur, vöðvakerfi/stoðkerfi/blóðrásarkerfi/hjarta
- Félagsleg tengsl
- Hægt að stunda hvar sem er og hvenær sem er
- Aukin tækifæri til þess að njóta útivistar og náttúru
- Góður grunnur fyrir bikejöring (hjóla með hund) og skijoring (skíða með hund)

Um námskeiðið :
Námskeiðið er kennt yfir tvö kvöld
Mánudagur kl 18:00 – ca 21:00 (bóklegt)
Þriðjudagur kl 17:00 - ca 19:00 (verklegt)
Þegar þátttakendur hafa lokið námskeiðinu fá þeir fría áksrift í hlaupahóp Óstöðvandi sem æfir saman alla fimmtudaga kl 18:30
Partur1 - Bókleg kennsla og búnaður kl 18:00 - 21:00
Staðsetning:
Veslun Óstöðvandi á Garðatorgi ( í stóra sólskálanum, inngangur hægra megin við Bónus og hægra megin við Lyfju )
Fyrirlestur:
Þátttakendur kynnast sportinu og fá meðal
annars fræðslu um hvað ber að hafa í huga svo andleg og líkamleg vellíðan hundsins sé tryggð.
Þátttakendur læra t.d. hvernig er best að kenna hundum verkefnið að draga án þess að það hafi áhrif á hefðbundna taumgöngu, hvernig eigandi aðstoðar hundinn sinn að skilja sitt hlutverk og hvernig á að standa að þjálfun hvolpa til þess að undirbúa þá sem best fyrir framtíð í canicross.
Farið er yfir upphitun hunda fyrir áreynslu og niðurkælingu eftir hlaup.
Fyrirlesturinn kemur inn á marga þætti sem snúa að lærdómsferli hundsins og gefur eiganda verkfæri til að lesa taugakerfi hundsins síns fyrir,undir og eftir þjálfun.
Búnaður :
Að fyrirlestri loknum verður farið verður
yfir canicross búnað og mismunandi búnaður kynntur. Hver og einn þátttakandi fær persónulega aðstoð með mátun og val á búnaði fyrir sig og hundinn sinn.
Þátttakendur fá 15 % afslátt af canicross búnaði og öllum útivistar fatnaði fyrir fólk ásamt 10% afslátt af öllum öðrum vörum frá Non-stop dogwear í verslun Óstöðvandi á fyrirlestrakvöldinu.
*eigendur geta valið að taka hundana með á fyrirlestrakvöldið en þeir þurfa að bíða í bílnum á meðan fyrirlestri stendur. Hlé eru á fyrirlestri svo hægt sé að viðra hunda á milli ef þess er þörf. Eigendur hunda sem geta ekki beðið í bíl geta annaðhvort sótt hunda sína heim að fyrirlestri loknum eða valið að koma með þá
í verslun Óstöðvandi á opnunartíma daginn eftir.
Partur 2 - verkleg kennsla kl 17:00 - 19:00
Staðsetning:
Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði
Verkleg kennsla:
Þátttakendur mæta með hundana sína og æfa
saman undir leiðsögn kennara sem stýrir upphitun fyrir eigendur og hunda.
Hér setjum við í verk fyrir okkur og hunda þá ramma og rútínu sem við höfum lært um á fyrirlestrinum.
Að því loknu verður skokkað saman styttri vegalengd ca 2km (eða styttra eftir því sem við á) þar sem markmiðið er að æfa hundana saman í hóp og æfa tæknileg atriði sem kynnt hafa verið á fyrirlestrinum undir leiðsögn kennara.
Hlaupahópur Óstöðvandi:
Námskeiðið veitir þátttakendum fría
áskrift í Canicross hlaupahóp Óstöðvandi sem æfir saman öll þriðjudagskvöld kl 18:30. Forsenda þess að fá aðgöngu í hlaupahópinn er að hafa lokið Canicross
námskeiði hjá Óstöðvandi, þannig tryggjum við að allir meðlimir hópsins hafi fengið sömu upplýsingar. Með þessu fyrirkomulagi hefur skapast góð samheldni á
æfingum sem skilar sér í góðu andrúmslofti og fyrir bæði hunda og menn. Það er pláss fyrir alla hjá okkur og við berum virðingu fyrir hvert örðru og hundunum okkar.
Mikið gaman, mikið fjör ! Hlaupahópur Óstöðvandi er með lokaða fb grúbbu þar sem við skiptumst á fréttum,
fræðslu og peppum og höldum vel utan um þennan frábæra hóp. Einnig er hópurinn með afsláttakjör á t.d. hlaupaskóm í ákveðnum verslunum.

Algengar spurningar :
Fyrir hverja ?
Námskeiðhenntar bæði byrjendum jafnt sem vönum hlaupurum og allir geta tekið þátt á
sínum forsendum, hvort sem markmiðið er að bæta tíma í ákveðnum vegalengdum eða
byrja að stunda öðruvísi útivist með hundinum og njóta á sínum hraða.
Fjölskyldu afsláttur:
Ef fleiri en einn einstaklingur á sama heimili skrá sig á námskeiðið veitum við 50% afslátt á skráningu/m eftir fyrstu skráningu ( óháð fjölda hunda á heimili ) *Til þess að sækja um fjölskyldu afslátt þarf að greiða fyrir fyrstu skráningu og senda svo póst á ostodvandi@ostodvandi.is og taka fram nöfn fjölskyldumeðlima sem óskað er eftir afslætti fyrir. Við sendum þér afslàttarkóða sem þú notar tilað bóka á fjölskyldu afslætti. Miðar á fjölskyldu afslætti veita einnig fría aðild að hlaupahópnum að námskeiði loknu.
Ef ég kemst ekki á verklega hluta námskeiðsins í sömu viku ?
Þegar þú hefur lokið bóklega hlutanum getur þú fengið að mæta í verklega hlutann á öðrum degi ef kvöldið
eftir bóklega henntar ekki. Við vinnum alltaf í lausnum.
Geta hvolpar komið á námskeið?
Hvolpar eru velkomnir og þótt þeir eigi ekki að byrja að hlaupa langar vegalengdir, þá er til mikils að vinna að fara á námskeiðið með hvolp til þess að læra grunn undirstöðu atriði sem munu skila sér í enn betri upplifun fyrir eiganda og hund í framtíðinni. Í hlaupahópnum
hjálpum við hvolpaeigendum að stilla æfingarnar í samræmi við andlega og líkamlega getu hvolpsins og berum fyrst og fremst hag hvolpsins fyrir brjósti. Sem dæmi má nefna að það er hægt að mæta á æfingu án þess að hlaupa neitt, þá er t.d. hægt að æfa að halda yfirvegun og ró í gegnum upphitun í sjónrænu áreiti frá öðrum hundum og tæknileg atriði sem skipanir.
Geta reaktívir / stressaðir hundar / hundar sem gelta á aðra hunda tekið þátt?
Já þeir geta það! Canicross getur verið frábær leið til þess að aðstoða hundinn þinn með ýmis hegðunarvandamál. Á námskeiðinu sjálfu og í hlaupahópnum leggjum við ríka áherslu á að það er pláss fyrir alla. Reglurnar eru líka skýrar, canicross er ekki vettvangur fyrir hunda til þess að hittast eða heilsa
hvor öðrum, heldur til þess að æfa í góðu sambandi og samvinnu með eiganda sínum undir sjónáreiti við aðra hunda. Eigandinn getur stýrt því hversu mikið áreitið er eftir því hvað hundurinn höndlar og við aðstoðum með það. Sumir hundar geta vel hitað upp, gert teyjuæfingar og hlaupið nálægt hvor öðrum á meðan aðrir þurfa meiri fjarlægð og það er fullur skilnigur fyrir því og við aðstoðum gjarnan eigendur að vinna hundinn sinns krefinu nær frá þeim stað sem þeir eru staddir hverju sinni.
Námskeiðið sjálft er kennt í litlum hópum svo þátttakendur kynnast vel hvort öðru og þannig getum við parað saman hunda í æfingum sem kalla á meiri nálægð
(t.d. að taka frammúr )
Það hafa tæplega 100 hundar farið í gegnum námskeið hjá okkur og við höfum séð marga hunda gjörsamlega blómstra í þessu sporti. Enda er það mjög valdeflandi
fyrir hundinn að vera virkur í teymi með eiganda sínum í þessu verkefni að hlaupa saman frá A-B. Svo við tölum nú ekki um aukið endorfín sem gerir okkur öllum svo gott.
Ef þú ert ennþá efins þá mönum við þig til að slá til og prófa, þú mun ekki sjá eftir því og hundurinn þinn mun elska það!
Ef þú hefur spurningar ertu velkomin/n/ið að senda á kolbrun@ostodvandi.is

















