CANIX BELT 2.0

17.990 kr

Breyttu hlaupatúrnum með hundinum þínum í alveg nýja upplifun ! Sérhannað belti fyrir hlaupara óháð getustigi . 

Color: Black
Size

Einstök hönnun CaniX belt 2.0 dregur úr álagi á mjóbakið og stuðlar að góðri hlaupatækni. Beltið er svo létt og þægilegt að þú finnur varla fyrir því!

CaniX 2.0 hlaupabeltið er ofurlétt og hannað fyrir bestu frammistöðu. Einstök hönnun hjálpar við að draga úr álagi á mjóbakið og stuðlar að góðri hlaupatækni. Við þróuðum beltið í samstarfi við úrvals canicross hlaupara og útkoman er í uppáhaldi hjá hinum margfalda canicross heimsmeistara Ben Robinson. 

Þegar þú hleypur með hund er líkami þinn undir stöðugu áreiti krafta sem toga miðju þína úr jafnvægi. Það er því nauðsynlegt að hafa belti sem tekur mið af hreyfiferli líkama þíns sem hlaupara og dreyfir álaginu vel á rétta staði, sérstaklega þegar hundurinn togar fast. 

CaniX 2.0 beltið kemur með öruggri læsanlegri karabínu sem festipunkt fyrir línu hundsins þíns.Karabínan hreyfist á lykkju að framan og fylgir hreyfingu hundsins þíns, sem jafnar út þrýsting á mjaðmir þínar, jafnvel þó að hundurinn þinn dragist út fyrir miðju.Með þessari uppsetningu er auðveldara að viðhalda jafnvægi og tengingu við hundinn þinn, jafnvel í beygjum. Beltið hefur fullt af stillingum svo auðvelt er að aðlaga beltið að margskonar líkamsformi. CaniX 2.0 beltið kemur í stærðum small, medium og large.  Á bakhlið beltisins er 0,5 L teyjanlegur vasi með rennilás til að geyma síma, lykla eða aðrar nauðsynjar. 

Stærðartafla

Tæknilegar upplýsingar